I greed you with my celebrating hand!!

08. janúar 2009 klukkan 22:15

gleði,gleði og hamingja...

loksins í lífinu er þessi djammaða önn búinn..! get ekki sagt að þetta hafi verið heilbrigðasta eða auðveldasta önnin sem ég hef gengið í gegnum en með hjálp ýmissa aðila hefur hún nú verið bærileg og partlega jafnvel bara mega.... ég vill sérstaklega þakka halldóru sem klárlega á skilið þessa persónulegu tileinkuðu færslu...

undanfarnar þrjár vikur hefur lítið annað verið gert en að soga upp anatómíu, vefjafræði og fósturfræði, 10-14 tíma á dag, í rúman 21 dag.. þetta gerir almenna samskipta heilabúið eðlilega ekki heilbrigt og vil ég því þakka snilla-halldý með ofurást meega fyrir að vera skilningsríkasta manneskjan á jörðinni þegar ég gekk í gegnum hnetulegustu tímabil sem ég hef tekið í lífinu og staðið við bakið á mér eins og elgur, en í 8 daga töluðum við í um 90klst um hin ýmsu anatómísku tengdu málefni og stóðum uppi sem kleppsefni eftir þessa daga (við erum á góðri leið í að endurheimta geðheilsuna þegar þetta er skrifað)...
hún fær líka kúdós fyrir að vera "the black comic relief guy" á meðan þessari geðveiki stóð og algjörlega fyrir að gera þetta læritímabil virkilega eftirminnilegt og veita mér lífs-bros við og við með skemmti-aðgerðum…

það sem hæst stendur samt uppi er klárlega þegar Halldóra bakkar frekar vafasamlega út úr eldhúsinu mínu, lítur á mig eins hægt og í hryllingsmynd og segir: bergþóra ég held ég hafi kveikt í.... þegar ég kem er kaffikannan hennar helgu í ljósum logum og er komin með anatómísk stríðssár, við fengum kannski ekki kaffikönnukaffi en við sjokk-vöknuðum allaveganna..

halldý í ógleði og gleði


ég í ógleði og gleði

prófið sjálft var nú líklegast mest stressandi lífsreynslan en samt eftirá ljúft… ég, helga og halldóra mættum klukkan 8 sjarp, svo tók við upplestur nafna og einn og einn í einu gekk inn í sláturhúsið, þarna beið ég til rúmlega 11 búin að sjá bæði bros og tár hjá fólki sem gekk inn og var á toppnum á stressinu og búin að ganga í gegnum öll sorgarstigin með miklum tilþrifum þar til það uppgvötaðist ða mér og annarri íslenskri stelpu höfðum verið ruglað saman þannig vegan nafna-misstafsetningu þá átti ég ekki að fá að taka prófið, ég var við það að krossa yfir geðveika strikið, en eftir að beita sakleysissvipnum og kreisí brosinu í max þá loksins var hægt að redda þessu og ég fékk loksins að taka prófið ..

eftir prófið nutum við höfðingjarnir dagsins í hinum ýmsu vel-skildu verðlaunum eins og fótsnyrtingu og nudd-þæginlegheitum og forum endurnærðar út að borða með fyrsta björ ársins sem var ekki lengi að segja til sín eftir svefnlausar nætur og stressmikla daga..

en ég er allavega búin að þessu skemmtidjammi, byrjuð að ná upp misstum svefni, og á leiðinni heim.. sjáumst á morgun!

Djammið lifir..

Blelli. Kv.MEGAánægjubelli

Sem ps. Að byrja í jólafríi í þessum töluðu orðum ..

Bergţóra Ţorgeirsdóttir

veeeeiiiveeeeiii..!!

18. desember 2008 klukkan 16:59
jæja núna er önnin búin og bara lokapróf dauðans eftir... en það er djamm
ég er ánægðari en lífið
var í prófi áðan og mér gekk bara frekar megavel... þannig núna er ég með undanþágu frá öllu verklegu í lokaprófinu... meiiira djamm
ég er eiginlega bara ósamræðuhæf í augnablikinu þar sem ég get eiginlega bara ekki talað vegna megabross sem hefur yfirtekið fésið á mér...
ætlaði bara að deila því hvað ég er óþolandi hamingjusöm og einkar jákvæð í augnablikinu og ótrulegt en satt þá er ég meira að segja að hlusta á jólabylgjunna sem er náttúrulega meira sýra en egg..
íslenskir jólatextar eru frekar eiturlyfjaðir
"töfrar þínír fylla ljósadýrð um bæinn, ég og þú hlægjum allan daginn" ?!?! hæfileikar að verki...

en ég og pelvis og abdomen óskum ykkur gleðilegs mega fimmtudag




lifi djammið
blelli.kv.hamingjubelli
Bergţóra Ţorgeirsdóttir

gleđi í lífinu...

10. desember 2008 klukkan 10:11
ég er búin með physíó og bæjókem á þessari önn, ég tók vandræðalegt valhopp áðan og slammaði með, ég held að ef ég vilji halda almennrar samskólanemendna virðingu þá ætti ég ekki að endurtaka þann leik aftur...
ég var s.s. í physíó (lífeðlisfræði) lab-prófi, fyrst inn og með þeim síðustu út... djamminn ég byrjaði að gera vitlausan part í ákveðinni tilraun áttaði mig svo á því, reyndi með mínum barnslega saklausu augum að redda mér úr því og fá að svara spurningum úr þeirra tilraun en í fyrsta skipti brást lúkkið (þetta er afleiðing af þrítugsaldrinum), þaaannig ég þurfti að framkvæma lengstu tilraunina og var inni í ár og dag, en svo gekk þetta nú vel og í lagi og ég fékk plús í kladdan... vúpvúp..! :D

núna er það bara vefjafræði, anatómía og fósturfræði sem stendur í vegi mín og íslands, ég er búin að panta prófdag 6 janúar þannig ef að allt gengur eftir verð ég komin í frostkápunni með pulsu í einni og bjór í hinni á íslandið nokkrum dögum eftir það... gleðigleði...

og ennþá með gleðifréttir, þvottavélin okkar er víst eitthvað að taka stressið á csapó inná sig og er byrjuð að froðufella í tíma og ótíma þannig leigukvendið ætlar að redda okkur annarri (ég segi ekki nýrri en annarri allavega) sem er ágætt þar sem þessi er nú komin á grafabakkann.. það verður haldin minningarathöfn um þennan heilaga grip.

en ég er hér með búin að afneita svefni þangað til 20 desember, koffein og sykur verður mín aðalnæring og rauðsprunginn kreisí augu verður tískulúkkið næstu daga ...
<-- með svona aparat verð ég gangandi með næsta mánuðinn eða svo

ég ætla ða læra eins og enginn er morgundagurinn
óskiði mér góðs gengis
og mér líkar ekki við þennan jólfrís-fíling sem er að yfirtaka vini mína...
lifi djammið
blelli.kv.trölla/læri-belli
Bergţóra Ţorgeirsdóttir

ég elska ađ ljúka einhverru...

01. desember 2008 klukkan 19:10
það er svo mögnuð tilfinning að það er eiginlega ekki vart að lýsa henni.... ég var s.s. í dag að klára síðasta prófið mitt í physíó á 1stu önninni á 2ru ári og get klárlega farið út í jólabæ á eftir og snúið saklausum borgurum debrecen í hringi úr ánægju..!

annars er bakgarðurinn á csapó (miðbærinn) búin að breytast í eins og ég sagði jólabæ, með ó-kreppulegustu skreytingum sem ég hef séð, ljós á hverjum fersentimetra og jólabásar út um allt. Svo er líka meeeeega jólatré með óendanlega rómuðu jólaskrauti og risa hátalari sem spilar vandræðalegag 80-s jólalög allan daginn... (baara í dípó)... en að koma heim úr trammanum í desember myrkrinu eða labba með feik-fransk bakaríis gúmmilaði í bænum er óneitanlega hamingjusamt móment í mínu lífi...

og svona aðeins til að andlita fólkið heima, þá er 15 stiga hiti hérna í augnablikinu, peysuveður í dípó í desember, leiðinlegt.. =)

bara til að enda þessa færslu ekki á svona ógeðslega skemmtilega væmnum og hamingjusömum nótum þá á sunnudagsmorguninn vaknaði ég, leit í spegilinn, fór í geðshræringu og öskraði vandræðalega mikið inn í mér... þá var ég komin með 8 manns í fésið (manns = bólur) sem voru og ERU ekkert að fela sig fyrir umheiminum, þannig ég tók upp á í geðveikinni að mútileita á mér andlitinu þannig núna er ég eitt sár í framan og lít því miður ekki eins vel út og jólabærinn í dípó í augnablikinu...

en til að fagna mega phísíó anægju ætla ég að fara út að borða í bíói (bíópopp er lífið)
lifi djammið
kv.
fílamaðurinn

Bergţóra Ţorgeirsdóttir

ţessi dagur er heiđrađur...

18. nóvember 2008 klukkan 12:48
ásdísi, sem er ein mest æðislega og ótrúlega óendanlega elskuleg týpa í lífinu  sem á afmælisdag í dag.. vúei!

síðastliðin vika er ekki búin að vera mega afkastarmikil, eftir öll þessi hjart-stressandi próf lagðist ég eiginlega bara í ólæridvala, en það er allt í lagi því ég er smátt og smátt að endurheimta gleði-læri-lífsgleðina á ný og rækta rétta öndun og svona róandi hluti =)

en það gerðist samt svolítið ótrúlegur hlutur í mínu lífi á fimmtudaginn.. það opnaði mega moll í debrecen, 143 skrefum frá Csapó nr. 4 (jújú ég taldi)... Þetta er mest nútíma bygging sem hefur sést í dípó og bylting í átt að nútímanum, ég ætla ekki að gorta en þarna er 2 hæða kreisí góð H&M, þið getið ímyndað ykkur tilfinningasprengjuna þegar ég stóð fyrir utan, andlegt tár jafnvel, þannig ef þið leggið tvo og tvo saman þá vil ég bara feisa ykkur örlítið meira, 2 H&M búðir í dípó á einni viku, ég er ennþá í sjokki, og orðin agnarögn fátækari..

þessi ör-vegalengd er ekki góð fyrir búðar-fíkla sálina mína, en ég tek einn dag í einu og vara mig á að falla ekki í freisni, naga neglurnar í staðinn og byrja örugglega að keðjureykja bráðlega...

föstudagskvöldið var ótrúlega næs kvöld, ég fór í partý-gallann með partý-hjartað og drakk nokkra vel blandaða skemmtidrykki og söng vandræðalega laglaus eydís-lög eins og partý-fólki sæmir.. náði vel þeim áfanga að vita í lítið í lífinu og næstu tveir dagar einkenndust af aukahjartsláttum og óþægilega staðsettum hausverkjum, en það er gjaldið sem maður borgar til partý-guðanna.. :)

ég djömmuð á laugardagsmorguninn... vandræðalega lík Nick Nolte, what gives?

ég ætla að grafa djúpt í læriandan, og brosa aðeins yfir því að þurfa aldrei aftur að fara í bæjókem-lab á fyrstu önninni á öðru ári aftur... !

djammið lifir
blelli.kv.djammaðibelli..

ps. heilsukveðjur til karí..


Bergţóra Ţorgeirsdóttir

veeeiii...

11. nóvember 2008 klukkan 16:34
dagurinn sem ég er búin að bíða í 3 vikur er loksins komin, dagurinn sem bergþóra gerði EKKERT.

En ég er búin að vera í nokkrum virkilega skemmtilegum prófum (kaldhæðni much?) og kláraði síðustu tvö í gær. Til að fagna þessum mikla stress áfanga þá fórum ég og Halldóra í (wait for it) H&M sem hefur tekið sér bólfestu í dípó, jújú, allt að gerast í þessum menningarhlutum. En hún ss. opnaði 30 október og vandræðalegt að segja frá því þá fann ég mér ekki tíma til að mæta sem sérstakur gestur og vígja hana með bænamottuna og krossin á opnunardaginn, en ég hef beðið í áttina til hennar 5 sinnum á dag og loksins rann upp ferðadagur og gvuð hvað það var ljúft fyrir hjartað að komast til mekka. Ég valhoppaði af gleði um búðina (sem var vandræðalegt þar sem ég er ekki með eðlilegasta valhoppið), kreppubergþóra leyfði sér hitt og þetta og er núna sátt með allar þær afmælisgjafir sem ég gaf mér.


Eftir þessa messu þá skundaði ég heim á csapó, tók fram kústinn og þurrkuna og gerði hreint eins og goðum meðleigjanda sæmir, en ragnheiður er búin að fara í hvern teskó leiðangurinn eftir annan og án hennar væri ég væntanlega dáin úr næringarskorti, þannig takk fyrir lífið ragnheiður!


vegna mikinns ósvefns síðastliðnar vikur þá eftir skóla kom ég heim og dó í rúminu mínu, vaknaði myglaðari en allt 4 tímum seinna og er búin að stunda vídjógláp og ó-hugsun síðan þá... sem ég ætla að halda áfram að gera í allt kvöld...
ekkert er ljúft...

blellikv.óstressaðibelli

ps. til hammó óbama!!
Bergţóra Ţorgeirsdóttir

svona er lífiđ mega

05. nóvember 2008 klukkan 22:33

þessi mynd sýnir algjörlega hvernig mér líður í hjatranu....
stressaðari en egg..
aðeins að stíga yfir á geðveiku hliðina í lífinu
ofvirknin alveg að drepa mig
nördinn algjörlega það eina sem er á yfirborðinu
eeeen...
ég er jákvæð og ánægð
og mér líður mega vel og mér finnst lífið vera óendanlega næs og teitað...

það er ekki leiðinlegt að ganga þannig inn í nýtt aldursár ..

lifi djammið
blelli.kv.afmælisbelli...

ps. ef einhver vill gefa mér afmælisgjöf



histó og bæjókem karma og lukka og velgengi er líka vel þegin....!
Bergţóra Ţorgeirsdóttir

hćttulega manneskjan...

25. október 2008 klukkan 22:02
ætla byrja þessa færslu á pínu deje vu.... á mánudaginn fer ég í skólann... læt í þvottavél... það er eitt einfalt handtak sem ég þarf að muna eftir, gleymi því... læt s.s. slönguna ekki ofan í baðið, þannig þegar að ragnheiður kemur heim um hádegið er allt á floti.. schneelld, en eins og ég sagði þá hef ég þangað til 6 nóvember til að heimilisþroskast, í millitíðinni hendi ég mikill ást í áttina til ragnheiðar fyrir að hjálpa mer í áttina að þessum þroska..!

ungverjalandar eru svo fyndnar týpur.. það eru alltaf haldnir "hátíðar"dagar í tilefni einhvers sem fór virkilega illa með þá, svona eins og að tapa í stríði, en það var einmitt einn slíkur á fimmtudaginn þannig við fengum langa helgi þessa helgi sem er búið að vera óendanlega ánægjulegt. Á miðvikudaginn hélt yndislegi andlegi bróðir minn hann Njáll upp á afmælið sitt, þannig við "kreppu"fólkið fórum út að borða og svo í huggulegt partí en verandi teitistýpan þurfti ég ekki mikinn tíma og fór heldur snemma heim, svo var ég vakin af djammaða þríeykinu (ragnheiði, helgu og gylfa) klukkan 5 um morguninn en þau gerðust svo myndarleg og bökuðu pönnsur sem var náttúrulega eitt það mest næs sem ég hef upplifað...

svo gerði ég svoldið flippað, en ég ætlaði að vera samviskusamasta týpa aldrinnar og eyða hátíðarhelginni í lærdóm og almenn viturleg-heit eeen vegna óendanlega mikils hópþrýstings þá ákvað ég í hendingskasti að skella mér í næturferð til búdapest.. ég var í samviskubitskasti í lestinni á leiðinni en það sem ég fékk í staðinn var svo ómetanlegt að ég á ekki orð.. þar sem eg eyddi gærkvöldinu í óendanlega góða máltíð, óendanlega mikið af góðum drykkjum, með óendanlega ólýsanlega mögnuðu fólki, lék við partýbangsann, tók vandræðalega mörg karíókílög, þar sem slagarar eins og Wannabe með spice Girls og Survivor með Destiny's Child voru sungnir af innlifun og lyst og dólslæti leikin inn á milli... Eftir þetta kom ég endurnærð inn í lærilífið með partýhjartað, jákvæðnina og jafnaðargeðið í botni.. svona lifir maður á brúninni
en ég bið ykkur vel að lifa og vona að ykkur líði jafn vel að innan og mér ..

<-- anna maría ástmaður minn og feis-margaríturnar


ást og friður
djammið lifir
blelli.kv.ánægjubelli...

Bergţóra Ţorgeirsdóttir

ţessi dagur er....

18. október 2008 klukkan 12:39
... tileinkaður HALLDÓRU, mega manneskju í lífinu með meiru, sem fagnar fæðingardeginum sínum í dag...



Í tilefni þess ætlum við að halda tvöfalt afmælisteiti í kvöld, þar sem ég á afmæli eftir rétt rúmar tvær vikur... spennan er svona nett í hámarki og ég er með teitishnút í maganum... þannig vinir og vandamenn ykkur er boðið í fagnað í dípó ef þið sjáið ykkur fært um að mæta.

En svona talandi um afmæli, þá á ég óheppilegasta afmælisdag fyrr og síðar, í fyrra var það deginum fyrir próf (ég var náttúrulega stressuð í drasl og svona nett í sjokki yfir því að vera komin á þrítugsaldurinn) og á þessu ári mun ég fagna honum með því að taka anatómíupróf, en það veldur agnar hjartadauða í hvert sinn. Ég ætla því að þakka foreldrum mínum kærlega fyrir djammaða dagsetningu og Antal (Satan) fyrir að vera svona magnaður og breyta dagsetningunni á prófinu.. takk :)

en ég fæ að taka það út í kvöld þannig ég reyni að fella ekki mörg tár..

þessi skólavika er samt búin að líða eins og ljósár sem er slæmt þar sem eftir 2 vikur er ég að fara í prófatörn þar sem alheimsvitneskja er undirstöðuatriði, ég bið því alvaldið á hverjum kvöldi áður en ég fer að sofa um heimsfrið, góðæri á íslandi og fleiri klukkutíma í sólahringinn en alltaf vakna ég í vonbrigðum og sé fram á það að næstu vikurnar verði svefn að víkja fyrir lærdómi, en það er alltaf hægt að bæta það upp í janúar...

ég er líka að komast í svona pínu jólaskap þar sem haustið er svona að hænuskrefast hingað og jólaklementínurnar komnar í tesco, sem er ávísun á það að ég verði ekki í jólskapi á jólunum sem er samt jákvætt því jólaskap er bara fyrir anatómíuskapi..

og talandi um anatómíu, en þar erum við með alvöru lík sem við fáum að kryfja, þessi lík eru búin að vera í formelíní í rúmt ár áður en við fáum að spreyta vitneskju okkar á þeim, en við kryfjum bara þann part sem við erum að læra hverju sinni. Við erum búin vera með okkar lík síðan í febrúar og búin að vera að grúska í þeim, andandi að okkur yndislegu formelín lyktinni og óvart snerta dauða vefi og svona skemmtilegt. Svo kom það í ljós í vikunni þegar brjóstkassinn var opnaður á líkunum að eitt þeirra var bara með berkla.. jújú og þær eru sko bakteríur í partí því þettu eru einu bakteríurnar sem deyja ekki í formelíni, og fólk bara búið að vera að í óviðhæfilegri nánd við þær, og ekki berklabólusótt... en þeir segja að þetta sé ekki hættulegt, líkið verður bara tekið í burt og við lifum bara vonandi óberkluð áfram...

svo meira frá hús-hæfileikum mínum... þá fékk ég það verkefni að baka fyrir afmælið í gær.. takmarkið var mega venjuleg íslensk skúffu kaka, bara svona til að sýna hvað fólk hefur almennt litla trú á mér í bakstri þá spurði ég karí hvort hún mundi eftir hennar uppskrift og fékk þetta svar "nei, en hún væri heldur ekkert góð ef þú myndir baka hana"...
þarna hefði ég náttúrulega átt að hætta við allt saman, en þar sem ég er alltaf að leitast við að læra og þroskast ákvað ég að taka áhættuna.. fór í tesco, keyptí í partí og köku, byrjaði eldhúsverkin heima hjá halldóru, skar ávexti eins og atvinnumaður og við helltum eituráfangi yfir (verkefni 1 heppnaðist s.s eins og í sögu)... ég fór frá halldóru með smá kvíða og halldóra náði að róa mig aðeins með því að segja mér að láta ragnheiði bara hjálpa mér, eftir þetta pepp up var ég komin með mega eldhússjálfstraust, kom heim, neinei var ekki ragnheiður að fara.. þannig ég stóð ein eftir með kökuhráefni og gasofninn (sem mun valda dauða mínum einhvern daginn).
ég var ennþá jákvæð (enda jákvæð týpa) og byrjaði að malla saman í kökuna, það gekk svona.. fínt... kveikti á ofninum og lét kökuna í ofninn og bjó til glassúr.. fínt.. svo eftir smá stund, fann ég pínu lykt ég fer eins og sannur bakari og kíki í ofnin.. þá er hún bara brennd undir en ekki tilbúin ofan á (ég skil ekki eðlisfræðina á bak við þetta en þann dag i dag).. een ég smakkaði óbrenndan part og hann var í lagi og ég vildi ekki að hún myndi bara fara til spillis eftir þetta erfiði þannig ég sneri henni við og viti minn kakan brotnaði aðeins.. een svo skóf ég af brennið sneri henni aftur við (og hún brotnaði meira), svo límdi ég hana saman með óhóflega miklu glassúri og faldi brotið með gígantísku magni af kókos...
verði ykkur að góðu í kvöld ...

annars ætla ég að halda áfram í læri-maraþoninu..
lifi læri djammið og friðurinn og kvöldið
blelli.kv.belli

Bergţóra Ţorgeirsdóttir

Dagurinn ţegar ţađ var júlí í október

12. október 2008 klukkan 11:39
Það er svo óendanlega mega heitt inni hjá mér, varla líft, og þar sem ég er ekki best líkamlega á mig stödd eftir kreppubjór gærkvöldsins þá finnst mér ekki sniðugt hjá veðurguðunum að heiðra okkur með svona hitastigi í október... en þar sem ég er með svo bilað mikið jafnaðargeð þá læt ég þetta ekki á mig fá...

krepputal er náttúrulega bara aðal/eina umræðuefnið hjá fólki bæði hérna og þegar ég tala við fólkið heima, ég hef ekki miklar áhyggjur enda jafnaðargeðsmanneskja þó ég gæti verið grátandi í fósturstellingunni út í horni, en þetta verður góð saga að segja barnabörnunum þegar ég verð orðin skrýtna ó-bakandi amman 2048 "í gamla daga þegar ég var í kreppunni, námsmaður í ungverjalandi!", ég verð hápunktur gleðinnar, fæ mikið af heimsóknum...

svo líka á föstudaginn kom kata til mín, við gerðum kreppupasta, fórum og drukkum kreppubjór og horfðum á coneheads, sem er virkilega vanmetin mynd, og svo kúrðum við hjá gilbert... það var ómetanlegt að sofa út og vakna ekki snemma og í góðu líkamlegu ástandi í fyrsta sinn í langann tíma...

og í gærkvöldi ég og Ragnar (ragnheiður) gerðum okkur samt veislu frystis-kreppu mat; frosnar kjötböllur, frosnar baunir, frosnar franskar, frosnar franskar með tóró kjötbollu sósu... ég er allavega ekki kreppusvöng. Svona til að minna á hvað ég er hús-óþroskuð þá þegar við vorum að fara að elda á gaseldavélinni okkar þá fannst mér ótrúlega óeðlilegt hún væri jafn heit og hún var, og við frekari eftirgrennslu þá kom í ljós að ég hefði ekki slökkt á gasinu síðan kvöldinu áður, heldur bara stillt á lægsta hitastigið... ég á náttúrulega ekki að vera nálægt tækjum, næstum því valdandi gassprengingum á csapó og himinháum gasreikningum og lekandi þvottavélavatni...  en ég hef tæpan mánuð til að þroskast... (6nóvember hátíðardagur ársins..)


en ég ætla að halda áfarm í lærdómnum, maður getur dundað sér við það ókeypis :)
lifi djammið (og krónan)
blelli.kv.kreppubelli!



Bergţóra Ţorgeirsdóttir

Auglýsing

Prófíll

  • Nafn: Bergţóra Ţorgeirsdóttir
  • Stađur: Akranes
  • Atvinna: námsmađur
  • Hjúskaparstađa: ótrúleganćs
  • Um mig: Ég er föđurlandssvikari ađ lćra meistaraverk lćkningarinnar í ungverjalandi...
  • Annađ: Stórir pakkar og löng bréf... : Csapó u. 4 3/56, 4029 Debrecen, Hungary , Löng símtöl : 0036 60 70 602 3659 eeeđa 496 1110 og skemmtileg og fréttmikil emeil: bergthora87@gmail.com ...respectively... =)

Innskráningar kubbur

Klukkan

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Ţennan mánuđ: ...
  • Frá upphafi: ...